Lífeyrissjóður bænda

54. fundur
Þriðjudaginn 17. desember 1991, kl. 15:34:00 (2191)

     Rannveig Guðmundsdóttir :
     Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. á þskj. 248 um frv. til laga um breyting á lögum nr. 50/1984, um lífeyrissjóð bænda, með síðari breytingum.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund til viðræðna um það Indriða Þorláksson og Snorra Olsen frá fjmrn.
    Nefndin mælir með samþykkt frv. og skrifa allir nefndarmenn undir nefndarálitið.