Fyrirkomulag dagskrár

56. fundur
Fimmtudaginn 19. desember 1991, kl. 18:01:00 (2340)

     Halldór Ásgrímsson :
     Virðulegur forseti. Þótt ég geti að sjálfsögðu ekki fullyrt um það hversu lengi fundur efh.- og viðskn. verður held ég að það sé alveg ljóst að hann mun verða lengri en sem nemur hálfri klukkustund. Það er því engin von á því að við, sem þar sitjum, komum til fundar fyrr en að honum loknum. Ég vænti þess að á meðan fundurinn varir verði ekki tekin fyrir mál hér sem snerta okkar málasvið.