Ferill 90. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 90 . mál.


93. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um eignarhald, fjármögnun og fyrirkomulag framkvæmda við höfn fyrir álver á Keilisnesi.

Frá Sturlu Böðvarssyni.



    Hver mun standa fyrir undirbúningi og framkvæmdum við hafnargerð á Keilisnesi vegna álvers sem þar á að rísa?
    Hvernig verða framkvæmdir fjármagnaðar?
    Hverjir verða eigendur hafnarinnar og hver verður eignarhlutur hvers eiganda?
    Telur ráðherra koma til greina að sveitarfélögin á Suðurnesjum sjái um byggingu og rekstur hafnarinnar í tengslum við rekstur annarra hafna á svæðinu?