Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 103 . mál.
106. Fyrirspurn
til samgönguráðherra um uppsetningu vegriða.
Frá Inga Birni Albertssyni.
Hvað líður framkvæmd ályktunar Alþingis frá 11. mars 1991 um uppsetningu vegriða í vegakerfi landsins?
Hvers vegna reyndist ekki unnt að leggja áætlun um uppsetningu vegriða fyrir Alþingi fyrir 1. nóvember 1991 eins og ályktunin kveður á um?