Ferill 150. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 150 . mál.


161. Frumvarp til laga



um kaup á björgunarþyrlu.

Flm.: Ingi Björn Albertsson, Steingrímur Hermannsson,


Guðrún Helgadóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Össur Skarphéðinsson,


Guðmundur Hallvarðsson, Stefán Guðmundsson, Matthías Bjarnason.



1. gr.


    Ríkisstjórnin skal á árinu 1992 gera saming við framleiðendur eða seljendur um kaup á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.

2. gr.


    Fjármálaráðherra er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að taka lán á árinu 1992 að fjárhæð allt að 150 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar upphæðar í erlendri mynt.

3. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


     Frumvarp þetta er efnislega samhljóða ályktun sem Alþingi samþykkti sl. vor. Í 2. gr. er lánsfjárheimild fyrir fjármálaráðherra vegna málsins. Frumvarpið er flutt til þess að herða á því að vilji Alþingis í þessu máli nái fram að ganga.
    Flutningsmenn telja að löng og ítarleg greinargerð með frumvarpinu sé óþörf. Þingheimi og landsmönnum öllum á að vera ljóst hversu brýnt er að þjóðin eignist sem fullkomnasta björgunarþyrlu eins fljótt og nokkur kostur er á. Málið þolir enga bið. Flutningsmenn vona að Alþingi beri gæfu til að veita þessu frumvarpi samþykki sem allra fyrst þannig að það geti orðið að lögum fyrir næstu áramót.