Ferill 267. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 267 . mál.


448. Fyrirspurn



til forsætisráðherra um ferðakostnað ráðherra.

Frá Eggert Haukdal.



    Hver var ferðakostnaður hvers ráðherra vegna ferðalaga til útlanda:
    árið 1989,
    árið 1990,
    1. jan.–30. apríl 1991?
    Óskað er eftir svofelldri sundurliðun:
    Hve margar ferðir hver ráðherra fór, hvert farið var og hve lengi ráðherra dvaldist samtals erlendis,
    fargjöld,
    samanlagður hótelkostnaður (gisti- og fæðiskostnaður),
    risna,
    dagpeningagreiðslur, þar með talið álag á þær,
    heildargreiðslur til maka, sundurliðað í ferðakostnað, dagpeninga og annan kostnað.


Skriflegt svar óskast.