Ferill 312. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 312 . mál.


517. Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um kostnað íslenska ríkisins við samningsgerðina um Evrópskt efnahagssvæði.

Frá Finni Ingólfssyni.



    Hver er beinn launakostnaður og fjöldi þeirra starfsmanna hér heima og erlendis sem hafa að aðalstarfi sinnt samningsgerðinni frá upphafi árs 1989 til loka febrúar 1992?
    Hver er kostnaður við ráðgjafastörf hér heima og erlendis vegna samningsgerðarinnar á sama tíma?
    Hver er ferðakostnaður vegna samningsgerðarinnar? Kostnaðurinn óskast sundurliðaður í:
         
    
    ferðakostnað og fjölda ferða utanríkisráðherra,
         
    
    ferðakostnað og fjölda ferða annarra embættismanna,
         
    
    dagpeningagreiðslur til utanríkisráðherra,
         
    
    dagpeningagreiðslur til annarra embættismanna,
         
    
    risnukostnað utanríkisráðuneytisins og þeirra sendiráða sem tengjast samningsgerðinni.


Skriflegt svar óskast.