Ferill 301. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 301 . mál.


546. Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Helgadóttur um auglýsingar utanríkisráðuneytisins í Alþýðublaðinu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu háa upphæð greiddi utanríkisráðuneytið fyrir auglýsingar í Alþýðublaðinu frá 1. maí 1991 til 1. mars 1992?
    Hvað var auglýst?


    Svar:
    442.880 kr.
    Auglýstir voru kynningarfundir með utanríkisráðherra um EES og GATT. Einu sinni var auglýst laus staða til umsóknar.