Samningar við EB um fiskveiðimál

100. fundur
Þriðjudaginn 12. janúar 1993, kl. 13:47:12 (4674)

     Árni Johnsen (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Steingrímur Hermannsson lauk máli sínu áðan með því að hvetja til þess að menn vörpuðu ljósi á staðreyndir í því máli sem um er rætt. Mig langar að ítreka spurningu sem ég beindi til hv. þm. í morgun. Hann hefur vitnað nokkuð í fund þann sem hann sem forsrh. 1990 ásamt þáv. utanrrh. hélt með framkvæmdastjórn EB í Brussel og þessi fundur hefur komið nokkuð inn í umræðurnar. Mig langar að spyrja hv. þm. hvort hann telji ekki eðlilegt að fundargerð frá þessum fundi birtist þannig að menn hafi svart á hvítu það sem um var fjallað, hvort það sé ekki til þess að upplýsa nánar um aðdraganda þessa máls.