Kaup á björgunarþyrlu

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 17:16:27 (5500)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Þetta er nú skrípaleik líkast. Það er þannig að ég hef margítrekað hér bæði í minni fyrstu ræðu sem ekkert var loðin í þessum efnum og öllum þeim ræðum síðar að ríkisstjórnin mun innan fárra vikna meira að segja ganga til samninga um kaup á þyrlu. Þetta hef ég sagt hér inni. Allir þeir sem vilja heyra, a.m.k. allir þeir sem þessu máli fylgja af heilindum en ekki af einhverjum pólitískum skrípaleik, hafa skilið það sem sagt er.