Flutningar á járnbrautum

119. fundur
Miðvikudaginn 03. mars 1993, kl. 14:20:43 (5552)

     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Herra forseti. Það vekur athygli að þær umræður sem hér hafa farið fram snúast að sjálfsögðu ekki um þá staðreynd að við höfum ákveðið að gerast aðili að hinu Evrópska efnahagssvæði og í samræmi við þá samninga ber okkur að samþykkja þau ákvæði sem frv. þetta fjallar um. Þetta er auðvitað mjög smátt mál en ef menn vilja endurtaka umræðurnar um málið í heild sinni undir þessum dagskrárlið, þá tekur það sinn tíma en það er ekki gert til þess að skýra efnið fyrir sjálfum sér og öðrum heldur eingöngu til þess að halda hér uppi málþófi.