Ráðstafanir til að efla fiskeldi

150. fundur
Fimmtudaginn 01. apríl 1993, kl. 16:03:46 (6714)

     Árni M. Mathiesen (andsvar) :
    Frú forseti. Já, hv. þm. Össur Skarphéðinsson getur alveg örugglega treyst á það að ég muni hjálpa honum í þessu efni. Og ég hef yfirleitt reynt að vera honum samferða í tíma, sérstaklega hvað varðar fiskeldið. En mig tekur það auðvitað sárt ef honum hefur ekki tekist að koma vitinu fyrir þá flokksfélaga sína, hæstv. iðnrh. og bæjarstjórann í Hafnarfirði. Ég verð að segja að ég hef svona svipaða sögu af þeim að segja. Ég hef líka reynt að koma vitinu fyrir þá en mistekist, því miður.