Jón Kristjánsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Ég vil undir liðnum um gæslu þingskapa mótmæla því að það hefur komið hér fyrir trekk í trekk í dag að hæstv. félmrh. hefur ekki virt þá svars sem veita andsvör og eigi að síður er skorinn niður tími þeirra sem veita andsvörin. Tíminn er skorinn niður í 1 1 / 2 mínútu og 1 mínútu fyrr í dag og síðan virðir félmrh. ekki þann svars sem veitir andsvar eða svarar honum einhvern tíma seinna. Þetta er ekki góð venja og ég vil mótmæla þessu.