Vörugjaldskrá hafna

171. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 11:40:22 (7967)


     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Ég er alveg sammála fyrirspyrjanda um að mál af þessu tagi hljóta ávallt að vera til endurskoðunar áfram, en ég álít að það sé líka nauðsynlegt að sveitarfélögin sem eiga mestra hagsmuna að gæta geri málin upp við sig. Það eru þau sem bera ábyrgð á og gera tillögur um gjaldskrá og ég hef ekki að svo komnu treyst mér til annars en að fara eftir þeim tillögum. En vitaskuld er þetta mikið álitamál sem hér er fjallað um og ekki einfalt einmitt með hliðsjón af því sem hv. fyrirspyrjandi sagði.