Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

21. fundur
Þriðjudaginn 15. september 1992, kl. 17:31:51 (751)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill taka fram að um hádegisbil hélt forseti þingsins fund með formönnum þingflokka og tjáði mér að um samkomulag væri að ræða sem ég held að hv. fulltrúi Kvennalista hafi hlotið að taka þátt í eins og aðrir. Því verður auðvitað haldið áfram eins og umsamið var, en ég held að forseti sé tilneyddur að leyfa mönnum að gefa andsvar og hæstv. sjútvrh. hefur farið fram á að veita andsvar.