Eftirlit með framleiðslu á fóðurvörum

26. fundur
Miðvikudaginn 07. október 1992, kl. 14:26:25 (1121)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Þeim ber ekki alveg saman hv. þm. Framsfl. um það hvernig þessi samningur varðar landbúnaðinn. Annar heldur því fram að hann snerti alls ekki landbúnaðinn en hinn heldur því fram að landbúnaðinum stafi stórkostleg hætta af samningnum.
    Um hormónana er það að segja að okkur er auðvitað heimilt að banna notkun hormóna við landbúnaðarframleiðslu hér á landi.