Málefni aldraðra

31. fundur
Miðvikudaginn 14. október 1992, kl. 15:42:14 (1318)


     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hæstv. heilbrrh. ætlar að efla heimilishjálp og heimahjúkrun. Það er gott mál og það verður fylgst með því og eftir því tekið hvernig hann framkvæmir það. Hæstv. heilbrrh. segir einnig að við byggjum allt of dýr dvalarheimili. Það getur vel verið að það sé rétt en það er spurning hvernig hæstv. heilbrrh. mundi vilja búa lenti hann á dvalarheimili. Gæti hann hugsað sér t.d. að vera á þriggja manna herbergi með Páli Péturssyni og Eiði Guðnasyni?