Egill Jónsson
:
Virðulegi forseti. Ég fagna og þakka fyrir þá trúverðugu umræðu sem hefur farið fram um tillöguna og það sem snýr að gróðurverndarmálum almennt séð. Ég get fullvissað 1. flm. tillögunnar um að hún verður tekin til ítarlegrar umfjöllunar í landbn. og að sjálfsögðu er mér ljúft að gera flutningsmönnum nokkra grein fyrir því hvernig þau mál þróast. En ég endurtek það sem ég sagði áðan að um hana mun fara fram trúverðug umræða á þessum vetri.