Viðskipti Stofnlánadeildar og loðdýrabænda

57. fundur
Fimmtudaginn 19. nóvember 1992, kl. 11:24:21 (2409)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) ( um þingsköp) :
    Herra forseti. Óhjákvæmilegt er að rifja það upp að síðasta ríkisstjórn lagði ráðstafanir vegna erfiðleika loðdýrabænda fyrir Alþingi á sínum tíma. Það var lagt fram í efri deild og það var fyrir tilstuðlan þingmannanna Egils Jónssonar og Skúla Alexanderssonar sem málið var sett í þann búning að hægt væri að segja að þær ráðstafanir væru viðunandi.