Aðild Íslands að Vestur-Evrópusambandinu

58. fundur
Fimmtudaginn 19. nóvember 1992, kl. 16:53:43 (2504)

     Geir H. Haarde :
    Virðulegi forseti. Ég vil láta þá skoðun mína koma fram að hér hafi náðst farsæl lausn í máli sem leit ekkert allt of vel út fyrr í dag. Hún hefur náðst vegna þess að allir hafa lagst á eitt um að tryggja að málið fái þann búning að þingið geti vel við unað. Hæstv. utanrrh. hefur lagt sig fram um að koma til móts við óskir stjórnarandstöðunnar í þessu efni og um þetta hefur náðst gott samkomulag. Það gerðist vegna þess að í hv. utanrmn. var haldinn fundur strax og um hann var beðið.
    Ég vil fyrir mitt leyti og fyrir hönd míns þingflokks þakka öllum þeim lagt hafa hönd á plóg í þessu efni.