Samgönguráðherra (Halldór Blöndal)
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Það er laukrétt hjá hv. þm. að það er ekki búið að slá hlutunum föstum endanlega fyrr en Alþingi hefur samþykkt þá. Það er auðvitað ekki hægt að byggja á fjárlögum næsta árs fyrr en Alþingi hefur samþykkt fjárlögin. Það er heldur ekki hægt að byggja á lánsfjárlögum fyrir næsta ár fyrr en lánsfjárlög hafa verið samþykkt hér á hinu háa Alþingi þannig að það er auðvitað laukrétt hjá þingmanninum að ef menn vilja taka málið fyrir á þeim grundvelli og vera með útúrsnúninga í þeim anda, þá er það alltaf hægt og er enginn snúnari hv. þm. í þeim fræðum. Honum er öllum mönnum betur treystandi til þess að halda áfram viðræðum í þeim anda sem hann hefur hér hafið og þjóna satt að segja litlum tilgangi.