Evrópskt efnahagssvæði

83. fundur
Þriðjudaginn 15. desember 1992, kl. 18:13:18 (3573)

     Geir H. Haarde (um þingsköp) :
    Ég hlýt að benda á það, virðulegi forseti, að utanrmn. hefur skilað af sér þingmálinu sjálfu og er nú lokið við að gera grein fyrir fjórum nál. í þessu máli. En það er alveg á hreinu að málið sjálft efnislega er ekki lengur á forræði nefndarinnar, hvort sem hún kallar það til sín aftur síðar meir eins og reyndar hefur komið fram ósk um. Ég bendi á að sá prófessor sem margoft hefur verið vitnað til í þessu máli í dag gerir sér grein fyrir því að rétti aðilinn til að snúa sér til í þessu máli er ekki lengur utanrmn. heldur forseti þingsins því þangað sendi hann bréf sitt í dag. --- [Fundarhlé.]