Evrópskt efnahagssvæði

84. fundur
Miðvikudaginn 16. desember 1992, kl. 22:16:02 (3658)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér fannst þetta athyglisvert svar hjá hv. þm. Ég verð að segja alveg eins og er að það sem þessi hv. þm. treystir sér ekki til að segja að Alþb. mundi í stjórnarmyndunarviðræðum gera kröfu til þess að þessum samningi yrði sagt upp ef hann hefði verið gerður þá hlýt ég að ætla að þrátt fyrir mjög vel flutta og ákafa ræðu sé alvara þingmannsins ekki sú sem ég hélt að væri.