Umboðssöluviðskipti

85. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 17:59:02 (3758)

     Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason) (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Vegna þeirra orða sem hv. þm. Svavar Gestsson viðhafði hér áðan þá tel ég rétt að skýra frá því að mér er kunnugt um að viðskrh. var fjarverandi framan af degi vegna þess að hann var við jarðarför. Síðan þurfti hann að sinna öðrum verkefnum og ég veit ekki betur en að svo hafi til talast að umræðan um Evrópskt efnahagssvæði ætti að hefjast hér kl. 21 í kvöld og að sjálfsögðu verður viðskrh. þá viðstaddur.