Málefni aldraðra

88. fundur
Mánudaginn 21. desember 1992, kl. 21:15:45 (4076)

     Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Sigbjörn Gunnarsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hluta heilbr.- og trn. um frv. til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 82 1989, með síðari breytingum.
    Nefndin hefur fjallað um frv. þetta er lýtur að því að rýmka heimild til að nýta fé Framkvæmdasjóðs aldraðra til rekstrar. Nefndin fékk umsagnir um frv. frá Félagi eldri borgara, Landssambandi aldraðra, stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Öldrunarráði.
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt með breytingu sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Tillagan felur í sér að b-lið 1. gr. frv. verði breytt á þann hátt að heimild til að nýta fé framkvæmdasjóðs til reksturs verði bundin við árin 1993--1995 og að upphæðin verði tilgreind í fjárlögum. Jafnframt er gert ráð fyrir að þetta framlag nemi ekki meira en 55% af heildarúthlutun sjóðsins á ári hverju. Áfram er þó í lögunum heimild til að veita tímabundið rekstrarfé til stofnana fyrir aldraða sem breyta eða hefja starfsemi eftir að fjárlagaár hefst.
    Meiri hluti nefndarinnar vill leggja áherslu á að miðað við núverandi aðstæður er nauðsynlegt að Framkvæmdasjóður aldraðra fjármagni meira en hingað til rekstur stofnana aldraðra. Jafnframt er ljóst að enn er veruleg þörf á fjármagni til uppbyggingar í húsnæðismálum aldraðra og með hliðsjón af því hefur heilbr.- og trmrh. lýst því yfir að hann muni beita sér fyrir könnun á högum aldraðra á áðurgreindu tímabili (1993--1995) og enn fremur verði á sama tímabili gerð áætlun um í þjónustu- og byggingarþörf og að framkvæmdir í samvinnu við þá áætlun hefjist fyrir lok tímabilsins.
    Undir þetta rita: Sigbjörn Gunnarsson, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Sigríður A. Þórðardóttir, Sólveig Pétursdóttir, Guðmundur Hallvarðsson.