Ferill 53. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. –
53
. mál.
55. Fyrirspurn
til forsætisráðherra um útboð á vegum forsætisráðuneytisins á árinu 1991 til og með 31. ágúst 1992.
Frá Finni Ingólfssyni.
Hversu mörg útboð í vöru, þjónustu og framkvæmdir voru á vegum ráðuneytisins og stofnana, sem undir það heyra, á árinu 1991 til og með 31. ágúst 1992?
Hvaða útboð voru þetta?
Í hve mörgum og hvaða tilvikum var lægsta tilboði tekið?
Í hve mörgum og hvaða tilvikum var lægsta tilboði ekki tekið? Hvaða rökstuddu ástæður lágu að baki þeirri ákvörðun?
Skriflegt svar óskast.