Ferill 446. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 446 . mál.


772. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um embætti umboðsmanns barna.

Frá Guðrúnu Helgadóttur.



    Hyggst félagsmálaráðherra beita sér fyrir stofnun embættis umboðsmanns barna en frumvarpi þess efnis var vísað til ríkisstjórnarinnar 15. maí 1992?