Stöðvun verkfalls fiskimanna

76. fundur
Þriðjudaginn 25. janúar 1994, kl. 23:35:22 (3478)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Í tilefni af spurningu hv. 8. þm. Reykn. vill forseti minna hann á að forseti gerði fundahlé þar sem

forseti átti viðræður við fulltrúa allra þingflokka. Hv. þm. var þar á meðal og við reyndum að finna lausn á þessu máli og niðurstaðan varð sú að það varð ekki samkomulag um að ljúka málinu öðruvísi en á þeirri kröfu er hv. 8. þm. Reykn. hefur hér lýst. Samvinna verður jafnan að vera gagnkvæm og á það hef ég lagt áherslu en einnig verður gagnkvæmnin að koma fram í því að hv. þm. verða að lúta fundarstjórn forseta og úrskurði hans um fundarstjórn og hann stendur í þessu máli og verður ekki aftur tekinn.