[16:53]
Guðni Ágústsson :
Hæstv. forseti. Það er erfitt að hafa ekki málfrelsi þegar á að gera mann hér að stórlygara fyrir framan þingið og þjóðina. Hv. þm. Egill Jónsson hefur fulla hugmynd um það að ég ræddi við hann --- að vísu ekki með vitni við hliðina á mér --- að ég vildi fá ákveðinn lögfræðing til að koma á fund nefndarinnar en þá ræddi hv. þm. um það að tíminn væri þrotinn og við yrðum að koma þessu máli fram áður en þingið færi í jólahlé. Hann veit hvaða lögfræðing ég á við og hann hlýtur að muna eftir þessu samtali sem okkur fór á milli.