Staðsetning hæstaréttarhúss

87. fundur
Fimmtudaginn 10. febrúar 1994, kl. 14:02:03 (3978)


[14:02]
     Flm. (Kristín Ástgeirsdóttir) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir hans orð hér. Ég vona svo sannarlega að hann beiti sér í ríkisstjórninni fyrir því sem hann var hér að nefna. Ég tek undir það að lóðin við Skúlagötu kemur vel til greina. Það er líka lóð við Lindargötu við hlið Hæstaréttarhússins sem mætti nýta. Þessa möguleika þarf auðvitað að kanna og enn og aftur ég hvet hæstv. forsrh. til að beita sér í þessu máli.