Umboðsmaður barna

96. fundur
Miðvikudaginn 23. febrúar 1994, kl. 15:27:03 (4415)


[15:27]
     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Gallinn er sá að það er einungis í frv. sem gert er ráð fyrir því að hæstv. forsrh. fari með þetta mál. Ég hygg að á meðan það er ekki í lög leitt hefði verið eðlilegra að fara að þeirri skiptingu sem er nú á þessum málaflokki þannig að framlagning þessa frv. er verkefni hæstv. félmrh. Þess vegna hefði ég talið eðlilegt að málið færi til félmn. En eins og ég segi finnst mér miklum mun meira mál að þetta frv. skuli fram komið en að ég hirði um að gera ágreining út af því en læt ekki af því að eðlilegra hefði verið að málið hefði farið til hv. félmn.