[16:17]
Guðni Ágústsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Hér staðfestir þingmaðurinn að hann telur réttaróvissu ríkja eftir að þetta hefur komið fram. Ég spurði reyndar að því hvort hann teldi rétt að leita til Lagastofnunar háskólans um túlkun á nefndarálitinu og hvort styddi frv. Síðan vil ég að hv. þm. í trúnaði segi okkur frá því hvernig svona agnarlítill flokkur fer að því að beygja stóran flokk eins og Sjálfstfl. í hverju stórmálinu á fætur öðru.