Framleiðsla og sala á búvörum

109. fundur
Þriðjudaginn 15. mars 1994, kl. 21:36:54 (5114)


[21:36]
     Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
    Herra forseti. Ég fagna mjög þessari yfirlýsingu hæstv. landbrh. Ég lít svo á að það sé alveg ótvírætt hvernig hæstv. ráðherra muni greiða atkvæði hér í þinginu ef til atkvæða kemur um þessar greinargerðir hvor eigi að gilda og það er mjög ánægjulegt að hæstv. ráðherra skuli hafa gefið hér svo afdráttarlausa yfirlýsingu.