Framleiðsla og sala á búvörum

109. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 02:29:11 (5171)


[02:29]
     Frsm. 1. minni hluta landbn. (Egill Jónsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég undirstrika það sem ég sagði áðan að framkvæmd þessara mála er í höndum landbrh. og þar af leiðandi hefur ekki verið farið sérstaklega ofan í það í smáatriðum hvernig þeirri framkvæmd verður háttað. Það er reglugerðarákvæði, landbrh. fær heimild samkvæmt þessum væntanlegu lögum til að gefa út slíka reglugerð og þá verður málið upplýst. Það er framkvæmdarvaldsins að gefa út reglugerðir en ekki Alþingis.