Veiting dýralæknisembætta

110. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 13:50:16 (5183)


[13:50]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Það eru ekki áætlanir um eða fyrirætlanir um að breyta skipan dýralæknisumdæma. Um dýralæknisembættið á sunnanverðum Vestfjörðum er það að segja að það embætti hefur verið auglýst. Ég veit ekki betur en yfirdýralæknir hafi gert tilraunir til að ráða dýralækna þangað vestur en ekki tekist.
    Um hið síðara er það að segja að það hefur dregist vegna þess að forföll hafa verið að ganga endanlega frá veitingu þeirra dýralæknaembætta en það verður gert öðru hvoru megin við helgi.