Vátryggingastarfsemi

110. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 16:00:04 (5220)


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Nú er forseta nokkur vandi á höndum. Klukkan er orðin fjögur og þingflokksfundir að hefjast. Þó vildi ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hann kysi að ljúka þessari umræðu þar sem ekki eru aðrir á mælendaskrá og vildi þá gefa hæstv. ráðherra helst ekki meira en fimm mínútur ef hann gæti komist af með það.