Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

116. fundur
Miðvikudaginn 23. mars 1994, kl. 13:38:24 (5559)


[13:38]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Það var nokkuð rætt um það í gær hvort vísa ætti þessu máli til efh.- og viðskn. eða fjárln., jafnvel allshn. kom upp í umræðunni. Ég legg það til að þessu frv. verði vísað til fjárln. þar sem hér er um fjárgreiðslur úr ríkissjóði að ræða. Hér er ekki verið að tala um breytingu á lánsfjárlögum, þá væri eðlilegt að vísa frv. til efh.- og viðskn. og hæstv. ráðherrar hafa heldur ekki viljað viðurkenna að þetta væri beinlínis algjört byggðamál þannig að ég tel að að öllu þessu skoðuðu þá eigi að vísa frv. til fjárln.