[15:28]
Pétur Bjarnason (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. en er nokkuð jafnnær að vísu eftir. En ég vildi leiðrétta það að ég sagðist ekki hafa aðrar upplýsingar um þverbraut á Patreksfirði en það hefði verið rætt um það fyrir 3--4 árum að hægt væri að lengja þverbraut á Patreksfirði og þess vegna spyr ég: Hvaða upplýsingar eru það sem komnar eru fram sem hindra það? Á núverandi þverbraut á Patreksfirði er hægt að lenda á Twin Otter og ég hef lent þar á þess konar vél en ég var fyrst og fremst að spyrja um möguleikana á lengingunni, hvort þeir væru fyrir hendi.