Framhaldsskólar

121. fundur
Mánudaginn 28. mars 1994, kl. 16:46:32 (5689)


[16:46]
     Flm. (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Hæstv. forseti. Frv. það sem ég ætla að mæla hér fyrir er á þskj. 568 og er til breytingar á lögum um framhaldsskóla, nr. 57/1988, með síðari breytingum.
    Þetta frv. er lagt fram til að tryggja það að skipunartími skólanefnda við framhaldsskóla og kjörtími sveitarstjórna fari saman.
    Í 7. gr. laga nr. 57/1988, um framhaldsskóla, segir að menntmrh. skuli skipa skólanefndir við hvern framhaldsskóla til fjögurra ára í senn. Í 15. gr. reglugerðar nr. 105/1990, um framhaldsskóla, sem sett var á grundvelli laganna, segir m.a., með leyfi forseta:
    ,,Menntmrh. skipar skólanefnd við hvern framhaldsskóla til fjögurra ára í senn og skal miðað við kjörtímabil sveitarstjórna. Í skólanefndum skulu sitja sjö menn: tveir fulltrúar starfsmanna kosnir á fundi allra starfsmanna skólans, einn fulltrúi kosinn af nemendum skólans, þrír fulltrúar tilnefndir af hlutaðeigandi sveitarfélagi eða samtökum sveitarfélaga í viðkomandi landshluta og einn fulltrúa skipar ráðherra án tilnefningar.`` Og les ég þá ekki lengra úr þeirri reglugerð.
    Það kom fram hjá hæstv. menntmrh. í svari við fyrirspurn sem ég lagði fram hér á hv. Alþingi 7. febr. sl. að skipunartími flestra skólanefnda við framhaldsskóla rynni út á tímabilinu janúar til mars 1994 og það ætti ekki við lög að styðjast að framlengja starfstíma nefndanna fram yfir fjögur ár. Lögin kveði skýrt á um það að nefndin skuli sitja um fjögurra ára skeið. Það sé því ekki hægt að fara að ákvæðum reglugerðarinnar um samræmingu kjörtímabils sveitarstjórna án þess að ganga gegn ákvæðum laganna um að setja skuli nýja skólanefnd þegar fjögur ár eru liðin frá skipan fráfarandi nefndar. Í máli ráðherrans kom enn fremur fram að eðlilegast væri að kjörtímabil skólanefndar og sveitarstjórnar færi saman en ráðuneytið hefði ekki heimild til að framlengja kjörtímabil þeirra skólanefnda sem voru skipaðar í janúar, febrúar og allt fram í mars 1990.
    Með samþykkt þessa frv. yrði ráðuneytinu veitt þetta svigrúm. Með því að setja inn í 7. gr. laganna ákvæði þess efnis að skipunartími skólanefnda fylgi kjörtímabili sveitarstjórna, skólanefndir skuli vera fullskipaðar eigi síðar en tveimur mánuðum eftir lok sveitarstjórnarkosninga og fráfarandi nefnd haldi fullu starfsumboði þar til ný nefnd hefur verið skipuð er náð fram því markmiði að skipunartími nefndanna fylgi kjörtímabili sveitarstjórna. Með bráðabirgðaákvæði frv. ætti jafnframt að vera tryggt að umboð þeirra skólanefnda er nú starfa sem rennur út á fyrri hluta þessa árs, fram að sveitarstjórnarkosningum, framlengdist fram yfir kosningar í lok maí nk. og nefndirnar yrðu skipaðar á ný eigi síðar en tveimur mánuðum eftir kosningar, þ.e. í síðasta lagi fyrir lok júlí.
    Þess má að lokum geta að þetta er í samræmi við eitt af meginmarkmiðum með setningu laganna nr. 57/1988, en í greinargerð með frv. að þeim lögum kemur fram að með því að veita framhaldsskólum aukið sjálfstæði sé skólunum veitt aðstaða til þess að taka tillit til staðhátta og þarfa atvinnulífs á hverjum stað.
    Frv. er lagt fram til að taka af þennan vafa og til að gera hæstv. menntmrh. kleift að starfa samkvæmt sinni sannfæringu því að það kom fram í hans máli að hann teldi að starfstími skólanefnda og starfstími sveitarstjórna ætti að fara saman.
    Síðan gerist það, sem kom mér mjög á óvart, að hæstv. menntmrh. gefur út nýja reglugerð 11. febr. 1994 og er það ekki mörgum dögum eftir að ég lagði fram þessa fsp. á hv. Alþingi. Þar með tekur hæstv. ráðherra út ákvæðið úr reglugerðinni þar sem segir, með leyfi forseta: ,, . . .   og skal miðað við kjörtímabil sveitarstjórna.`` Það veldur því að ég fór að trúa því sem ég trúði ekki í upphafi að hæstv. menntmrh. telji það alls ekki rétt að starfstími sveitarstjórna og skólanefnda eigi að fara saman. Þegar ég lagði fram þessa fsp. var ég ekkert sérstaklega að búast við því að hæstv. ráðherra gengi annað en gott eitt til með þessum bréfaskiptum til sveitarfélaga með því að tilnefna í nýjar skólanefndir en núna eru farnar að renna á mig tvær grímur skal ég viðurkenna, að hæstv. menntmrh. vilji endilega skipa nýjar skólanefndir fyrir sveitarstjórnarkosningar 28. maí. Og hvort það geti verið að einhvers staðar sé einhver ótti í brjóstum manna um það að meiri hluti Sjálfstfl. sé að falla og þess vegna sé gott að vera búinn að skipa þessa nýju nefndir til fjögurra ára.
    Þessu hlýtur hæstv. menntmrh. að svara hér því að þetta er það fyrsta sem öllum dettur í hug þegar þeir fara yfir þessa sögu. Og ég vona fyrst hæstv. menntmrh. er hér í þingsalnum að hann leyfi þingheimi að heyra álit sitt á þessu máli og útskýri þessa nýju reglugerð.
    Að lokinni þessari umræðu óska ég eftir því að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.