[16:22]
Páll Pétursson (andsvar) :
Frú forseti. Nú er ég alveg sammála hv. síðasta ræðumanni um það að orð hv. þm. Egils Jónssonar eru ekki lög eða það sem hann er látinn segja. En frá tæknilegu sjónarmiði fannst mér þetta vera óeðlileg aðferð þegar henni var beitt við lögfestingu EES-samningsins. Meiri hluti Alþingis féllst á þessa
málsmeðferð. Fordæmið er fengið og ég tel að það sé ekkert útilokað að beita því áfram.