Framleiðsla og sala á búvörum

123. fundur
Miðvikudaginn 06. apríl 1994, kl. 14:39:31 (5829)

[14:39]
     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Þar sem páskahelgin er nýliðin ætti þingheimi að vera í fersku minni sú setning: ,,Áður en haninn galar tvisvar muntu afneita mér þrisvar.`` Ég vona að þeir sem skrifuðu ákveðið nál. hafi manndóm til að standa við það sem þeir settu á blað en feli sig ekki á bak við eitthvað annað. Ég segi að sjálfsögðu já.