[15:17]
Petrína Baldursdóttir (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vil lýsa því yfir að ég er mjög ánægð með það að ég misskildi hv. þm. í þetta skipti og að hv. þm. Guðrún J. Halldórsdóttir fagnar þessum markmiðum og telur þau góð. Þá erum við sammála um það.