Samfélagsþjónusta

135. fundur
Mánudaginn 18. apríl 1994, kl. 16:06:51 (6438)


[16:06]
     Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Frú forseti. Það er rétt sem fram kemur hjá hv. 6. þm. Reykv., formanni hv. allshn., að með þeirri breytingu sem hefur orðið á frv. á Fangelsismálastofnun eða forstjóri Fangelsismálastofnunar ekki lengur aðild að samfélagsþjónustunefndinni og fyrir þá sök þarf að gera sérstakar ráðstafanir til þess að tryggja aðild Fangelsismálastofnunar að undirbúningi þessa máls. Ég tel þessa ábendingu nefndarinnar rétta og nauðsynlega og mun þess vegna gera ráðstafanir þegar samfélagsþjónustunefnd verður skipuð til þess að koma í erindisbréfi því sjónarmiði á framfæri sem hér hefur verið nefnt og tryggja eðlilega aðild Fangelsismálastofnunar að undirbúningi málsins.