Áburðarverksmiðja ríkisins

137. fundur
Þriðjudaginn 19. apríl 1994, kl. 17:54:53 (6487)


[17:54]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Hæstv. ráðherra er greinilega ekki búinn að hugsa það til enda hvernig hann ætlar að skipa þessa nefnd. Það væri þá e.t.v. rétt að ítreka spurninguna og spyrja hvort hæstv. fjmrh. verður ekki hafður með í ráðum þar sem mér heyrist að hann hafi ekkert verið hafður með í ráðum við söluna á SR-mjöli samkvæmt ummælum sem hann hefur látið falla í umræðum áður. Og einnig hvort Ríkisendurskoðun komi að því að meta eignir og skuldir verksmiðjunnar.