Vegalög

138. fundur
Miðvikudaginn 20. apríl 1994, kl. 13:38:49 (6493)


[13:38]
     Pálmi Jónsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Vegna athugasemda fram fram komu máli hv. 1. þm. Norðurl. v. í gær og vörðuðu 56. gr. frv. vil ég taka fram við upphaf atkvæðagreiðslu að samgn. hefur rætt þessa athugasemd og orðið ásátt um að flytja við 3. umr. brtt. þess efnis að 56. gr. frv. taki eigi gildi fyrr en 1. jan. 1995 vegna þeirra tengsla sem eru á milli þeirrar greinar annars vegar og þeirra breytinga sem boðað er að unnið verði að á girðingarkafla vegalaga til næsta Alþingis.