Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 17:47:44 (7315)


[17:47]
     Halldór Ásgrímsson :
    Frú forseti. Það er rétt sem hæstv. utanrrh. sagði að efh.- og viðskn. hefur starfað allmikið að þessu máli og það er ekki í fyrsta skipti sem þetta mál er til umfjöllunar hér á Alþingi því að mikil efnisleg umfjöllun um það hefur farið fram áður. Þannig að nefndin var mjög vel undirbúin að taka á málinu og hóf störf við það fyrir nokkru síðan. Ég vænti þess að það geti tekist gott samkomulag í þessu máli. Við höfum átt gott samstarf við viðskrn. í sambandi við það og ég er sammála hæstv. utanrrh. að það sé ekki ástæða til þess, miðað við þá miklu umfjöllun sem málið hefur fengið hér áður, að fara í þá umfjöllun aftur. Þannig að við munum reyna að ljúka málinu fyrir þinglausnir.