Reynslusveitarfélög

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 18:21:12 (7318)

[18:21]
     Frsm. meiri hluta félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti á þskj. 1119 um frv. til laga um reynslusveitarfélög frá meiri hluta félmn.
    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund til viðræðna fulltrúa frá félmrn., frá verkefnisstjórn reynslusveitarfélaga, umhvrn., samgrn., fjmrn., menntmrn., heilbr.- og trmrn., Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, Alþýðusambandi Íslands, Húsnæðisstofnun ríkisins, Skipulagi ríkisins, Sambandi ísl. sveitarfélaga, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Starfsmannafélagi ríkisstofnana, frá Vinnumálasambandi samvinnufélaganna, Vinnuveitendasambandi Íslands, Félagi ísl. hjúkrunarfræðinga, bæjarstjóranum á Akranesi og bæjarstjóranum í Hveragerði.
    Auk þess bárust nefndinni umsagnir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, borgarstjórn Reykjavíkur, bæjarstjórnum Garðabæjar, Akraness, Akureyrar, Vestmannaeyja, Neskaupstaðar og Njarðvíkur, sveitarstjórn Skaftárhrepps, Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, Eyþingi, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, Samtökum sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi, sveitarstjórn Rangárvallahrepps, Vinnuveitendasambandi Íslands og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Einnig bárust gögn frá samgönguráðuneytinu, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, félagsmálaráðuneytinu og bæjarstjóranum í Hveragerði auk erinda frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
    Meiri hluti félmn. leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerðar eru tillögur um á sérstöku þingskjali.
    Lagðar eru til breytingar á 6. gr. sem fela í sér að félagsmálaráðherra skuli leggja skýrslur verkefnisstjórnar um framkvæmd verkefnisins fram á Alþingi árlega í stað þess að það skuli eingöngu gert að tilraunatímabilinu hálfnuðu og að því loknu eins og frumvarpið gerir ráð fyrir að óbreyttu, þ.e. að í 6. gr. í stað 3. málsl. komi tveir nýir málsliðir sem orðist svo:
    ,,Félagsmálaráðherra skal enn fremur hlutast til um að árlega verði lagðar fram á Alþingi skýrslur verkefnisstjórnar um framkvæmd verkefnisins. Fyrsta skýrslan verði lögð fram á Alþingi vorið 1995 og sú síðasta vorið 2001.``

    Lögð er til breyting á 15. gr. sem veitir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra heimild til að víkja frá ákvæðum laga um heilbrigðisþjónustu og málefni aldraðra þegar í hlut á reynslusveitarfélag sem vill gera tilraun á því sviði sem frumvarpið tekur til. Þannig bætist nýr málsliður við greinina sem kveði á um að óheimilt verði að víkja frá ákvæðum laga sem varða skilyrði um faglega ábyrgð í stjórnun heilbrigðisstofnana og innihald þeirrar þjónustu sem á að veita samkvæmt nefndum lögum. Tillaga þessi tryggir að hlutaðeigandi stofnanir lúti ákvæðum laga um faglega stjórnun heilbrigðisstofnana. Þannig verður tryggt að á heilsugæslustöð í reynslusveitarfélagi starfi læknir með faglega yfirstjórn lækningasviðs og hjúkrunarfræðingur með faglega yfirstjórn hjúkrunarsviðs, sbr. 29. gr laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 97/1990, og ákvæði þar að lútandi í reglugerð fyrir heilsugæslustöðvar, nr. 160/1982. Á hinn bóginn kemur tillagan ekki í veg fyrir að hagræðing í formi breyttrar rekstrarstjórnunar eða breytts rekstarfyrirkomulags geti átt sér stað, svo sem frávik frá ákvæðum um aðild að stjórnum heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa eða skipun í þjónustuhóp aldraðra.
    Við 15. gr. bætist þannig nýr málsliður sem orðast svo:
    ,,Óheimilt er þó að víkja frá ákvæðum laga er varða skilyrði um faglega ábyrgð í stjórnun heilbrigðisstofnana og innihald þeirrar þjónustu sem á að veita samkvæmt nefndum lögum.``
    Lagt er til að 17. gr. frv. falli brott. Greinin fjallar um heimildir umhverfisráðherra til að víkja frá ákvæðum skipulagslaga og meðferð skipulagstillagna þegar reynslusveitarfélög eiga í hlut. Nokkur umræða varð um þessa grein í nefndinni og hvað þetta ákvæði gæti þýtt og hversu ólíkar reglur gætu gilt í sveitarfélögum við meðferð skipulagsmála samkvæmt þessari heimild.
    Í umfjöllun nefndarinnar kom einnig fram að í þessari heimild fælust m.a. möguleikar til að víkja frá ákvæðum skipulagslaga um fresti. Eftir umfjöllun nefndarinnar varð það niðurstaða meiri hlutans að leggja til brottfall þessarar heimildar, m.a. sökum þess að hún er af öðrum toga en aðrar fráviksheimildir ráðherra frá ákvæðum laga samkvæmt frumvarpinu.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að í reglugerð skv. 20. gr. frumvarpsins verði sett ákvæði þess efnis að samþykktir reynslusveitarfélaga um tilraunir skuli sendar viðkomandi fagnefndum Alþingis til kynningar. Meiri hlutinn telur einnig mikilvægt að íbúar reynslusveitarfélaga eigi þess kost að kynna sér allar samþykktir um tilraunir í viðkomandi sveitarfélagi á einum aðgengilegum stað. Þá leggur meiri hlutinn áherslu á að í reglugerð skv. 20. gr. verði sett ákvæði þess efnis að sveitarstjórnir reynslusveitarfélaga skuli kynna íbúum sveitarfélagsins samþykktir sínar um tilraunir á aðgengilegri og heildstæðari hátt en birting í B-deild Stjórnartíðinda felur í sér, sbr. 3. mgr. 7. gr. frumvarpsins og er þá átt við að kynningin geti farið fram á vettvangi sem er nær íbúum sveitarfélagsins, svo sem í almennum kynningarbæklingum.
    Virðulegi forseti. Undir þetta nefndarálit skrifa Rannveig Guðmundsdóttir, Gísli S. Einarsson, Guðjón Guðmundsson, Ingibjörg Pálmadóttir, með fyrirvara, Jón Kristjánsson, með fyrirvara, Eggert Haukdal, Einar Kr. Guðfinnsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, með fyrirvara.