Frestun á fundum Alþingis

159. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 18:41:02 (8016)


[18:41]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan er svohljóðandi:
    ,,Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 11. maí 1994 eða síðar, ef nauðsyn krefur, enda verði það kvatt saman á ný eigi síðar en 17. júní 1994.``
    Þessi tillaga, hæstv. forseti, skýrir sig sjálf.