Kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa

1. fundur
Mánudaginn 04. október 1993, kl. 13:49:06 (7)

[13:48]
     Aldursforseti (Matthías Bjarnason) :
    Þá verður tekið fyrir fyrsta málið á prentaðri dagskrá sem útbýtt hefur verið. Það er kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa.
    Tilnefning hefur borist um Salome Þorkelsdóttur, 2. þm. Reykn. Ef ekki koma fleiri uppástungur þá er Salome Þorkelsdóttir í kjöri. Ég tek fram að þau atkvæði sem kunna að koma á einhverja aðra þingmenn eru ógild atkvæði.