Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana (útvarpsumr.)

2. fundur
Þriðjudaginn 05. október 1993, kl. 20:32:25 (13)

[20:30]
     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Gengið er til dagskrár og fyrir tekið eina dagskrármálið, stefnuræða forsrh. og umræður um hana, sem útvarpað verður og sjónvarpað héðan úr þinghúsinu. Umræðurnar skiptast í tvær umferðir. Í fyrri umferð hefur forsrh. til umráða allt að hálfri klukkustund en fulltrúar annarra þingflokka 20 mínútur hver. Í síðari umferð hefur hver flokkur 10 mínútur til umráða. Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Sjálfstfl., Framsfl., Alþfl., Alþb. og Samtök um kvennalista.
    Ræðumenn fyrir Sjálfstfl. verða Davíð Oddsson forsrh. í fyrri umferð, Friðrik Sophusson fjmrh. og Vilhjálmur Egilsson, 5. þm. Norðurl. v., í síðari umferð. Af hálfu Framsfl. tala Steingrímur Hermannsson, 7. þm. Reykn., og Valgerður Sverrisdóttir, 3. þm. Norðurl. e., í fyrri umferð, en Guðni Ágústsson, 5. þm. Suðurl., í þeirri síðari. Ræðumenn Alþfl. verða: Jón Baldvin Hannibalsson utanrrh. og Petrína Baldursdóttir, 11. þm. Reykn., í fyrri umferð, en Sigbjörn Gunnarsson, 7. þm. Norðurl. e., og Guðmundur Árni Stefánsson, heilbr.- og trmrh., í þeirri síðari. Fyrir Alþb. tala Ólafur Ragnar Grímsson, 8. þm. Reykn., og Guðrún Helgadóttir, 14. þm. Reykv., í fyrri umferð, en Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðurl. e., í síðari umferð. Af hálfu Samtaka um kvennalista tala Kristín Ástgeirsdóttir, 18. þm. Reykv., og Kristín Einarsdóttir, 15. þm. Reykv., í fyrri umferð, en Anna Ólafsdóttir Björnsson, 9. þm. Reykn., í þeirri síðari. Hefst nú umræðan og til máls tekur hæstv. forsrh., Davíð Oddsson.